miðvikudagur, maí 09, 2007

Dúettinn Plató: Spillingardans




Spillingardans, spillingardans,

á Alþingi ráðamenn dansa þennan vals.

Gróðafíkn og nautnafans,

kapítalistar andskotans.

Já íslenskir ráðamenn þeir eru svín

á meðan alþýðan biður um mat.

Neyðaróp fólksins eru fyrir þeim grín,

þeir sitja og troða á sig gat.

Það er tími til kominn að henda þeim út,

um hálsinn berum við rauðan klút.

Hendum þeim fyrir hundana!

Látum þá drekka hland!

Og hér mun rísa fyrirmyndarland!


-----------------------------------
Já ég gæti ekki orðað þetta betur sjálf. Þetta er alveg brilljant texti, ég hlæ alltaf jafn mikið þegar ég heyri þetta lag. Ég á auðvitað diskinn í bílnum hjá mér, já og í tölvunni líka.
Ef ég væri í framboði til alþingskosninga, þá væri þetta sko án efa áróðurssöngurinn minn.. (með leyfi frá Fóstbræðrum vonandi..)

4 ummæli:

  1. Nafnlaus9/5/07 13:48

    Ha ha ha ha ha ha þetta eru algjörir snillingar ha ha ha stóðst ekki mátið og lét þetta á síðuna mína !!

    SvaraEyða
  2. hahaha vá ég kann þetta lag utan af, snilld :) ég elska líka jón gnarr í svona konubúningum það er ekki venjulega fyndið :)

    SvaraEyða
  3. Hey, alltaf þegar ég hlusta á fóstbræðradiskinn og heyri þetta lag þá hugsa ég til þín. Líka tvíhöfði, t.d. kindin Einar.
    Þetta eru nú óumdeilanlega bara snillingar, sbr. afi kemur í heimsókn, skór dauðans og amma skrattans! Ahhh, núna er ég komin í gott skap.
    -Bið að heilsa í blokkina með ógeðislyktinni
    Há þonn emm

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus4/5/13 06:19

    Αt thiѕ time ӏ am going awаy to do mу breаkfast,
    aftегωard having mу bгеakfаѕt coming agаіn to
    rеad otheг news.

    Feel free tο vіsіt mу homepаgе;
    hcg ultra diet drops reviews
    my web site :: hcg diet reviews 2011

    SvaraEyða