Hinir ósýnilegu
Halló halló.Mér hefur hlotnast smá tími til að koma upp og anda. Það er búið að vera hreinlega kreisí að gerast hjá mér í vetur í skólanum verkefni á verkefni ofan og próf þar á milli. Núna hef ég lokið 2 fögum, þar sem ég hef tekið heimapróf og skilað gommu af verkefnum, og á þá aðeins eitt lokapróf í síðasta faginu eftir. Það verður svona próf af gamla skólanum.. mæta í próf og reyna að muna allt sem maður er búinn að lesa og fá svo skriftarkrampa. Það er svo fyndið með prófin í háskólanum.. Alltaf þegar það eru próf, þá birtist einkennilegur hópur fólks sem mann grunar að "sörfeisi" bara í desember og maí.. það er prófyfirsetufólkið. Hvaðan kemur þetta fólk eiginlega?? Ekki eru þetta starfsmenn skólans þar fyrir utan.. amk það held ég ekki, því aldrei sér maður þetta fólk í byggingum skólans á milli próftíða. Megnið af þessu fólki er fólk sem komið er af besta aldri og sumir eru meira að segja svo aldurhnignir að maður er skíthræddur um að það hrökkvi upp af fyrir framan mann. Stendur háskólinn fyrir smölun á nánustu elliheimilum og íbúðum aldraðra til að fá fólk passa upp á að óprúttnir háskólanemar séu ekki með kókið sitt upp á borði og enga svindlmiða í pennaveskinu? Þetta er mér ráðgáta.
