mánudagur, febrúar 13, 2006

Gúrkutíð

Ég get nú ekki sagt að ég hafi verið alltof dugleg undanfarið.. hvorki við blogg né heimalærdóm.. maður þarf nú að fara að taka sig á býst ég við.. þessu fer öllu að ljuka, aðeins um 40 einingar eftir að BA prófi, betra að fara að taka sig á.
Gott væri nú að finna einhvern blóraböggul til að kenna um þessa leti mína, en mér sýnist að það gangi ekki.. ætli mér sé ekki einni um að kenna.. :S
Ég er auðvitað búin að eyða ansi miklum tíma með Villanum mínum, en hann er nú í vinnu eins og aðrir og ekki get ég reynt að kenna honum um.. heheh.. en ég get sosum ekki hugsað mér betri leið til að eyða tíma... nema kannski að sofa...har har
Annars er lítið að frétta úr heimi Sigrúnar... hef ekkert til að þjösnast eða bölva yfir, nema kannski draslinu heima hjá mér sem virðist aldrei fara þó svo að ég reyni að taka til.. það kemur bara alltaf aftur.. skil þetta ekki..

miðvikudagur, febrúar 08, 2006

Haaa?


Maður hefur bara ekkert að segja... febrúar fer þögull af stað á þessari síðu.. Posted by Picasa