þriðjudagur, október 26, 2004

Skjótandi rótum..

Ég er búin að sitja við tölvuna alltof lengi.. Hef varla hugmynd um hvað ég er að gera lengur.. Það er erfitt að reyna að vera fræðilegur allt í einu þegar maður hefur meira eða minna eytt mestum tíma sínum í einhverjum allt öðrum hugleiðingum.. Ég stend mig stundum að því að vera að pæla í því hvernig það væri að vera fluga.. kreisí? æ dónt nó..
Já, það er satt.. Ég þykist reyna að skrifa ritgerð... einu sinni enn, og auðvitað er ég hingað komin til að væla yfir því hversu það erfitt það er..
Hvernig dettur þessum kennslumönnum í hug að maður geti bara byrjað á ritgerð í upphafi annar eins og einhver skipulags meiníak?? Svoleiðis fólk ætti líka bara að banna í mannlegu samfélagi! Amk skal það halda sig frá mér, því mér er illa við það! ...auðvitað er ég bara öfundsjúk, vildi að ég hefði meiri Monicu-eiginleika.. (f.y.i.-úr Friends, ekki Hvíta Húsinu..)
Annars er ég bara brjálæðislegur berklasjúklingur núna.. hósta eins og ég eigi lífið að leysa og er nefmæltari en versti Texas-búi. Aumingja ég. On the bright side, þá virðast berklarnir/svarti dauði/mýrarkaldan -eða hvað sem þetta er- vera á afturhaldi.. kannski það þurfi ekki að klippa úr mér rifbein eða panta legstað eins og vaninn var hérna í gamla daga.. Það er nú möguleiki að þetta sé bara hið lífsseiga kvef sem landinn ætti nú að kannast við.. það er bara alltaf mikið skemmtilegra að ímynda sér hið versta :D
Well.. það eru 2 dagar í Ísafjörð, Bæ Dauðans. Og ég hlakka til að fara þangað! Ótrúlegt! En það er nú líka bara gaman að hitta gamla liðið og unga liðið... og líka hitt liðið.. :)
Best að halda áfram..
I love the Night life....

mánudagur, október 25, 2004

Landafræðikunnátta

Allir sem halda sig kunna eitthvað í landafræði-og líka þeir sem vilja æfa sig- tékkið á þessum vef. Við skulum ekki láta fáfróðar þjóðir eins og Bandaríkjamenn vera betri en við í smá landafræði.. Klikkið bara á titilinn á þessum pósti, þá kemur síðan með landafræði ólympíuleikunum. Áfram Ísland!!!



P.s. Það er líka hægt að æfa sig hér ef maður er slakur í ýmsum heimshlutum: http://www.nationalgeographic.com/geospy/

sunnudagur, október 17, 2004

Survival of the hippest

Ég álpaðist útá lífið um daginn.. Ég álpast reyndar ansi mikið þessa dagana, fæ ekkert ráðið við þetta.. En já.. lífið.. í Reykjavík.. Þetta er eins og einn risastór kjötmarkaður oft á tíðum. Fólk reynir að skarta sínu fegursta, vissulega undir mismiklum áhrifum ýmissa vímugjafa, og einhverjir bíta á, en aðrir sitja eftir og vonast til að ná árangri í næstu umferð.
Hin gamalkunna kenning Darwins "Þeir hæfustu lifa af", hefur lítið að segja í þessum efnum, heldur frekar eitthvað á þessa leið: "Þeir fegurstu lifa af." Fegurð í þessu samhengi er þá auðvitað skilgreint eftir nútíma viðhorfi samfélagsins; Fegurðin kemur ekki að innan. Til að reiknast fallegur, þá þarftu að standast staðla nútíma fjölmiðla; Konur þurfa að vera grannar, helst ekki yfir 55 kg og ekki undir 170 cm, allar steyptar í sama mótið auðvitað, með þetta "Séðog heyrt/Nælon lúkk"(Þær eru allar eins!!) sem er voðalega mikð inn í dag.. Guð forði okkur frá fjölbreytileika!!!.. Karlmenn eiga auðvitað helst að vera eins og Jónsi í svörtu fötunum eða einhver af þessum sterílu gaurum sem maður sér hist og her í auglýsingum, tímaritum og ýmsu.. Ókei, alltaf gaman að fallegu fólki.. það er hægt að horfa á það og láta sig dreyma, en samt sem áður.. þurfa allir virkilega að vera svona?? Viljum við öll vera steypt í þetta sama mót sem samfélagið (i.e. fjölmiðlarnir) hefur heilaþvegið fólk með?? Mér finnst þetta vera stór galli á gjöf Njarðar.. Fólk á ekki að samþykkja það að láta vega sig og meta eftir einhverjum stöðlum sem einhverjir tískuhönnuðir með anorexiufetish hafa mótað; en samfélagið svo tekið upp á arma sína og þróað áfram. Við erum manneskjur með eigin karakter og eigin skoðanir, en ekki einhver vélmenni með sameiginlega samvitund og engar skoðanir. Við þurfum ekki öll að vera jafn falleg, jafn rík, jafn gáfuð, jafn menntuð. Við þurfum ekki öll að ganga í tískufötun alla daga eða eiga kærasta/kærustu og flottan bíl til að teljast gjaldgeng í mannlegu samfélagi; og við þurfum ekki öll að vera komin með mann/konu, hús bíl og börn fyrir þrítugt. Við erum öll mismunandi og það er það sem er langskemmtilegast við að vera manneskja.

þriðjudagur, október 12, 2004

Sólon Íslandus var það heillin

Sko hana mömmu mína! Auðvitað vissi hún þetta. Þetta var nefnilega bókin Sólon Islandus eftir hann Davíð Stefánsson.
Mútta hefir auðvitað um 30 ára forskot á okkur flest hin.. hefur lesið næstum allar bækur sem hafa verið gefnar út á íslensku held ég bara.. og er núna að lesa bækur á ensku um íslensku.. of flókið fyrir mig... vildi að ég væri svona aktív.. þetta kemur kannski með aldrinum ;)

Ég hef fengið nokkrar beiðnir um að halda áfram blogg-skrifum, en ég hef reynt að koma mér undan því með þó nokkrum ráðum; afsökunum um andleysi, leti og guð veit hvað.. En ég fæ víst ekki sloppið við þetta svo ég skal reyna að sýna hvað í mér býr.
Þetta er bara haustið sem fer svona í mann.. maður reynir að halda sönsum til að standa sig í námi og skila ritgerðum og verkefnum á réttum tímum... múhahah
Fjandans tími hleypur alltof fljótt frá manni.. þetta er hætt að vera sniðugt.. síðast þegar ég vissi var skólinn t.d. nýbyrjaður og engin próf á næstu grösum og maður undi sæll við sitt að dóla sér í skóalnum. Núna er hinsvegar bara búið að skella einu stykki próftöflu framan í mann og maður finnur hvernig hárið rís á hnakkanum við tilhugsunina um endalausan próflestur sem virðist engan enda ætla taka.. nema þegar mann vantar meiri tíma auðvitað. Þetta er einhver stefna hjá skólayfirvöldum held ég... að koma með próftöfluna nógu snemma til að hræða úr manni líftóruna svo maður fari nú að drattast til að gera eitthvað annað en að sitja á rassgatinu og bora í nefið fyrir framan sjónvarp eða internet og í rauninni að fara að gera það sem ætlast er til af háalvarlegum háskólastúdent...
Held ég haldi áfram með ritgerðina mína.
Cogito...